Snúrubakkinn heldur öllum rafmagns- og tölvusnúrum undir skrifborði og auðveldar þér þannig að halda vinnuaðstöðunni snyrtilegri.
Hægt er að hengja snúrubakkann beint á skrifborð án þess að skemma yfirborðið. Einnig er einfalt að færa hann til.
Auðvelt að festa á skrifborðið eða annan láréttan flöt sem er að hámarki 1,2-4 cm þykkur.
Þú getur sett hann nánast hvar sem er undir skrifborðið og snúið honum inn eða út. Bakkinn er hentugur undir ýmsa hluti sem þú vilt hafa við höndina.
Safnaðu snúrunum saman í einn bakka. Hentug bönd með frönskum rennilás fylgja með og hjálpa þér að halda snúrunum í skefjum.