Þessi stílhreini fartölvustandur er úr samlímdum viðarspóni sem er sterkur, endist lengi og heldur lögun sinni.
Fartölvustandur sem hjálpar þér að vera í góðri líkamsstöðu því tölvan verður í augnhæð.
Lögunin gerir það að verkum að tölvan fær að anda og ofhitnar því ekki – og endist því lengur.
Stærðin hentar flestum fartölvum.
Fartölvustandur getur gert vinnuaðstöðuna betri; þú getur haft glósubók og penna undir honum og tölvuna ofan á. Síðan getur þú skellt músinni og lyklaborðinu þangað undir að vinnudegi loknum.
Stamir púðar undir standinum sjá til þess að hann sé stöðugur.