Fjórar hleðslurásir og því hægt að hlaða eina til fjórar rafhlöður í einu.
Slekkur á sér þegar rafhlöðurnar eru fullhlaðnar, ónýtar eða of heitar.
Með ljósi - sýnir hversu langt hleðslan er komin.
Rafhlaðan er tilbúin til notkunar.
Auðvelt í notkun, settu rafhlöðurnar í og stingdu í samband.
LADDA hleðslurafhlöður virka í flest, frá sjónarhorni sjálfbærninnar eru þær bestar í orkufrekan búnað eins og ferðahátalara, leikföng, vasaljós og myndavélar.
LADDA hleðslurafhlöður eru fullhlaðnar þegar þú kaupir þær og þú getur hlaðið þær allt að 500 sinnum.
Með STENKOL hleðslutæki getur þú alltaf verið með fullhlaðnar rafhlöður við höndina.
Með því að skipta út alkalín rafhlöðum fyrir LADDA hleðslurafhlöður, sem þú hleður með STENKOL, kemur þú til með að spara pening, minnka úrgang og draga úr umhverfisáhrifum þínum.
STENKOL hleðslutæki fyrir rafhlöður er úr 50% endurunnu plasti.
LADDA 2.450 mAh hleðslurafhlöður veita þér um 30% meiri endingu en LADDA 1.900 mAh.