Hillueiningin auðveldar þér að koma skipulagi á leikjagræjurnar þar sem þú getur haft skilrúmið lárétt eða lóðrétt.
Meðfylgjandi teygjur, snagar, festingar og hliðarhólf hjálpa þér að flokka og skipuleggja leikjagræjurnar og snúrur þannig að þú getir auðveldlega gripið það sem þú þarft þegar leikar hefjast.
Hliðarnar eru götóttar til að koma í veg fyrir að tölvan ofhitni, jafnvel þó leikurinn dragist á langinn.
Þú getur rúllað græjunum á milli staða og læst tveimur hjólum þegar þú hefur náð áfangastað.
Þú getur haft hliðarhólfið á hægri eða vinstri hlið til að geyma minni hluti sem þú vilt hafa innan handar.