Passar vel með öðrum hlutum úr LÅNESPELARE línunni.
Þú getur stillt hljóðnemanum upp eins og þér þykir þægilegast, jafnvel þegar þú þarft að nota hann lengi í einu, því hægt er að snúa standinum í allar áttir.
Hljóðneminn helst stöðugur jafnvel þótt þú færir standinn til og frá og hristist ekki.
Ef hljóðneminn er þungur getur þú stillt standinn með hnúðunum á hliðum hans.
Auðvelt er að festa standinn á skrifborðið eða annan láréttan flöt sem er að hámarki 6 cm þykkur.
Standurinn gerir þér kleift að hafa borðið snyrtilegt og losna við flæktar snúrur.
Þú getur einnig fest hljóðnemastandinn við vegg.
Passar fyrir flesta hljóðnema með 16 mm, 9,5 mm eða 6,4 mm snúru.
Einfalt að halla og snúa eftir þörfum – síðan er hægt að brjóta hann saman og taka með.