Tölvuleikjaaðstaðan verður að vera þægileg, sérstaklega ef leikurinn dregst á langinn. Þess vegna er borðplatan djúp – svo skjáirnir geti verið í þægilegri fjarlægð.
Endingargott og sterkbyggt með möttu yfirborði sem fer vel með augun því ljós speglast lítið á því.
Ef þú stendur reglulega upp við skrifborðið bætir þú blóðrásina og heilinn fær einnig meira súrefni og þú færð aukna orku, athygli og afkastagetu.
Fjarstýringin fyrir grindina er með tvö minni fyrir þægilegri og fljótlegri stillingu.
Skynjari nemur fyrirstöðu þegar þú hækkar eða lækkar borðið. Þá stoppar það sjálfkrafa og fer til baka um 30-50 mm.
Grindin er stillanleg og hentar því fyrir UTMANING borðplötur sem eru 120 og 160 cm á breidd sem gerir þér kleift að breyta stærðinni á skrifborðinu þínu án þess að skipta um grind.
Brún borðplötunnar styður þægilega við úlnliði og framhandleggi.
Stór borðplatan rúmar fleiri en einn skjá og allan búnað sem þú þarft.
Þú getur setið eða staðið á meðan þú spilar því hægt er að stilla hæð skrifborðsins úr 65 í 125 cm.
Það er lítið mál að halda borðinu snyrtilegu því snúrubakki með loki heldur utan um snúrurnar.
Undir borðinu er nóg pláss til að rúlla stólnum til og frá eða hreyfa fæturna. Tveir snagar á borðinu henta vel fyrir heyrnartól og töskur.