10 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Hjólin eru gúmmíklædd og renna því mjúklega á hvaða gólfi sem er.
Auðvelt að halda áklæðinu hreinu þar sem hægt er að taka það af og þvo í vél.
Hátt bak og rúnnuð lögun stólsins veita neðra baki góðan stuðning og þú þreytist síður. Þú situr þægilega, lengur og í góðri stellingu.
Aukinn stöðugleiki þar sem hægt er að læsa bakinu í uppréttri stöðu.
Hentar til notkunar í atvinnuskyni.
Stóllinn hentar afar vel til vinnu því hann hefur margar stillingar svo hægt sé að aðlaga hann að líkama hvers og eins.
Samstilltur hallabúnaður gerir það að verkum að stóllinn fylgir bakinu þínu. Stóllinn hallast aftur þegar þú hallar þér og opnar þannig mjaðmir. Þetta bætir blóðflæði og getur aukið orku.
Hægt er að stilla hæð sætisins svo þú getir setið í alveg uppréttri stöðu.
Hjólin læsast þegar enginn situr í stólnum og þegar þú stendur upp haldast þau kyrr.
Hjólin hreyfast mjúklega og einfalt er að stýra þeim á ýmsum tegundum undirlags; parketi, gólfteppi eða ójöfnu gólfi.
Armar veita stuðning fyrir framhandleggina og draga úr spennu í öxlum og baki á löngum fundum.
Sjálfvirkur sætishalli aðlagar sig að hreyfingum þínum og þyngd. Sætisbakið ýtir létt á bakið á þér og hjálpar þér þannig að halda virkri setstöðu.
Þegar þú hallar þér aftur gerir samstillti hallabúnaðurinn þér kleift að hafa fætur á gólfinu og horfa beint fram. Þú teygir úr brjóstkassanum án þess að setja álag á lærin, sem er betra fyrir blóðrásina.