10 ára ábyrgð
Efni
Hvað er spónaplata?
Spónaplata er unnin úr endurunnum við og afgöngum frá sögunarverksmiðjum – þannig verður viður sem ekki er í réttum lit, viðarflísar og sag að auðlind í stað þess að enda mögulega sem rusl. Við notum plöturnar í hluti eins og bókaskápa, rúmgrindur, sófa og eldhússkápa. Til að verja þær fyrir sliti og raka setjum við á þær lakk, viðarspón eða filmu sem bætir útlit húsgagnsins.
Eiginleikar
Mikið hirslupláss í litlu rými
GALANT skápur með rennihurðum rúmar allar möppurnar og skjölin sem þú þarft á að halda við skrifborðið – en tekur minna pláss. Hurðirnar renna til hliðanna í stað þess að opnast út og því þarf ekki að gera ráð fyrir því. Það þýðir einnig að þú getur komið skápnum fyrir nánast hvar sem er og færð meira pláss til að hreyfa þig við skrifborðið.