TOLKNING
Hangandi karfa, 2 í setti,
handgert bambus

2.990,-

2.690,-

Magn: - +
TOLKNING
TOLKNING

TOLKNING

2.990,-
2.690,-
Vefverslun: Til á lager
Fjölhæfa og hlýlega TOLKNING línan er úr náttúrulegum trefjum. Þessar fjölnota hangandi körfur eru gerðar úr afgöngum frá bambusframleiðslu okkar – og hjálpa þér að skipuleggja hlutina þína.

Hugleiðingar hönnuða

Nike Karlsson, hönnuður

„Hugmyndin á bak við TOLKNING vörulínuna var að skapa sjálfbærar vörur úr náttúrulegum trefjum sem hægt væri að nota á ýmsan hátt víðs vegar um heimilið. Ég notaði skandinavíska arfleifð mína og blandaði henni við þekkingu og kunnáttu handverksfólksins og úr urðu einstakar vörur – gerðar af fólki fyrir fólk. Ég vona að þær komi að gagni, gleðji þig og færi þér ánægju þar sem þú hefur tekið meðvitaða ákvörðun.“

Efni

Hvað er bambus?

Bambus er sterkur, sveignalegur og vex hratt – það er einnig hægt að nota hann á marga vegu og því er hann frábært endurnýjanlegt hráefni. Han er í raun grastegund sem vex án þess að þurfa á áburði eða vökvun á að halda. Þegar hann hefur verið skorinn upp vaxa nýir stilkar sem hægt verður að nýta eftir fjögur til sex ár. Við hjá IKEA notum bambus meðal annars í húsgögn, baðherbergisvörur, körfur og lampaskermi og erum stöðugt að leita að nýjum leiðum til að nýta þetta fjölhæfa hráefni.


Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X