695,-
Afsakið!
Það er ekki nóg til á lager fyrir pöntunina þína.
TISKEN
Færanlega sogskálin er snjöll veggfesting fyrir sveigjanlega hirslu á baðherbergið. Eina vandamálið er að hún getur losnað eftir einhvern tíma. Allt í einu heyrist dynkur inni á baðherberginu og sjampóflaskan er á gólfinu. Hvernig lætur þú sogskálina festast betur? Vöruhönnuðurinn Kristofer Adsegård og samstarfsfólk hans – sem bera ábyrgð á TISKEN baðherbergislínunni – vildu komast að því.
Kristofer og teymið byrjuðu á því að skoða ítarlega hvernig sogskál virkar. „Hún festist vegna þess að það er tómarúm á milli sogskálarinnar og yfirborðsins. En ef loft kemst inn rofnar lofttæmið – og festingin losnar af. Orsökin geta verið eitthvað lítið eins og óhreinindi og kalk á veggnum eða örlítil óregla á flísunum sem hleypir lofti inn,“ segir Kristofer.
Teymið fann lausnina í gervigúmmíi sem reyndist gott í að festast við mismunandi yfirborð og fylla upp í ójöfnur svo að loft komist ekki inn. „Við prófuðum sogskálarnar með nýja efninu, bæði á tilraunastofu og á heimilum fólks, til að tryggja að lofttæmið haldist stöðugt og að sogskálarnar haldist þar sem þú vilt hafa þær.“
Til að láta TISKEN baðherbergislínuna endast lengur er mikilvægt að meðhöndla sogskálarnar rétt. Kristofer útskýrir að þú ættir ekki að toga í krókinn eða aðra hluta til að láta þá losna, þar sem það getur skemmt haldið. „Til að losa um lofttæmið er betra að nota bankakortið, eða annað plastkort, á milli sogskálarinnar og veggsins. Ef þú svo setur sogskálina í vatn nálægt suðumarki í nokkrar mínútur og loftþurrkar hana svo verður hún næstum eins og ný.“
Hvers vegna losna sogskálar frá veggnum eftir smá tíma? Staðreynd sem pirraði okkur svo mikið að við gerðum ítarlega rannsókn á tækninni sem er notuð við lofttæmingu. Við komumst að því að óhreinindi og kalkleifar sem sjást varla hleypa lofti inn í sogskálarnar og rjúfa lofttæmið. Þess vegna leituðum við að nýju gúmmíefni sem lokar betur og fyllir upp í ójöfnur á veggnum fyrir TISKEN baðherbergislínuna. Því átt þú ekki lengur eftir að vakna upp um miðja nótt við það að sápubrúsarnir hrynji niður á gólf.
Við vitum hversu mikilvægt það er að hanna réttu húsgögnin fyrir mismunandi baðherbergi. Þess vegna eru margar hirslueiningar og aukahlutir fyrir baðherbergið úr plasti – sem hentar fullkomlega á sturtu/baðsvæði. Veldu á milli VESKEN, TISKEN, og BOLMEN línanna fyrir hagnýtt baðherbergi með aukahirsluplássi – þar sem þú getur baðað þig, þvegið og skvett vatni án þess að hafa áhyggur af því að fara illa með húsgögnin.
Vöru bætt við óskalistinn þinn
Vara fjarlægð frá óskalistinn þinn
Svona festir þú; þrífðu veggflötinn og þrýstu sogskálinni á vegginn. Þú þarft engin verkfæri.
Settu greiðslukort (eða annað svipað) á milli sogskálarinnar og veggsins til að losa hana. Skilur ekki eftir sig gat eða far á veggnum.
Sogskálarnar ná góðu gripi á sléttu yfirborði eins og gleri eða flísum.
Vörunúmer 803.812.94
1 pakkning(ar) alls
Þrífðu með rökum klút og mildu hreinsiefni. Þurrkaðu með hreinum klút.
Festist aðeins við slétt og flatt yfirborð eins og gler, spegla og flísar.
Þrífðu yfirborðið áður en þú festir sogskálina til að tryggja betra grip.
Burðarþol: 3 kg.
Passar með öðrum vörum í TISKEN línunni.
Ekki festa á veggfóður fyrir baðherbergi eða hvaða veggfóður sem er þar sem það getur valdið skemmdum.
Lengd: | 11 cm |
Breidd: | 8 cm |
Hæð: | 6 cm |
Heildarþyngd: | 0,10 kg |
Nettóþyngd: | 0,10 kg |
Rúmmál hvers pakka: | 0,6 l |
Aðeins nýjasta útgáfa skjalanna er í boði fyrir niðurhal. Það þýðir að það gæti verið eitthvað öðruvísi í skjalinu sem þú hleður niður og útgáfunni sem fygldi vörunni.
Vörunúmer 803.812.94
Vörunúmer | 803.812.94 |
Vörunúmer 803.812.94
Hæð: | 18 cm |
Hámarksþyngd: | 3 kg |
Vörunúmer: | 803.812.94 |
Pakkningar: | 1 |
Lengd: | 11 cm |
Breidd: | 8 cm |
Hæð: | 6 cm |
Heildarþyngd: | 0,10 kg |
Nettóþyngd: | 0,10 kg |
Rúmmál hvers pakka: | 0,6 l |
Finndu vöruna í versluninni
1 pakkning(ar) alls