Grár grunnur færir rýminu notalegt og hlýlegt andrúmsloft. Tilvalið ef þú vilt látlausan lit sem passar með öllu. Nútímalegt eða sígilt – þitt er valið.
Eftir þínu höfði! Breyttu um lit á hillueiningunni og útlit framhliðarinnar til að búa til nútímalegt, sígilt, stílhreint eða litríkt útlit sem höfðar til þín.
ENHET hangandi hilluinnlegg gerir þér kleift að nýta betur plássið á milli hillna í ENHET hillueiningum. Tilvalið til að koma skipulagi á hluti á borð við espressóbolla, krukkur, hárþurrkur eða handklæði.
Bættu við aukahlutum fyrir ENHET til að nýta hirsluna til hins ýtrasta. Engin þörf á að bora! Selt sér.
Hár skápurinn rúmar mikið magn af matvælum, þurrkum og hreinsiefni sem þú notar ekki eins oft.
Opin hirsla veitir þér góða yfirsýn og þægilegt aðgengi að krukkum, flöskum og hlutum sem þú notar oft.