10 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Einfaldur og fallegur! Stílhreint útlit og hvítt, matt yfirborð gefur baðherberginu bjart yfirbragð og einfalt er að aðlaga að stíl hvers og eins með hnúðum eða höldum.
Passar vel við vörur úr HAVBÄCK vörulínunni. Skapaðu baðherbergi sem hentar þér fullkomlega.
Handlaug úr postulíni með mjúkri lögun og endingargóðu yfirborði úr hágæða hráefni og kemur til með að endast um ókomin ár.
Þú getur bætt við speglaskáp eða spegli í þínum stíl, seldir sér.
Settu þinn svip á innréttinguna með hnúðum eða höldum sem falla að þínum stíl, selt sér.
Tveir vaskaskápar, borðplata og handlaug – blanda af opnum og lokuðum hirslum sem rúma hluti tveggja eða fleiri einstaklinga.
Einingin er fest upp á vegg. Það léttir á baðherberginu og einfaldar þér að skúra gólfið. Þú getur einnig bætt við fótum.