10 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Eldhúsið er hannað fyrir smærri innbyggð heimilistæki. Nett helluborð veitir þér meira vinnupláss á borðplötunni – tilvalið fyrir smærri íbúðir.
Keramikvaskur með mjúkum línum og endingargóðu yfirborði færir eldhúsinu hefðbundið og sveitalegt útlit.
Hátt blöndunartæki sem sparar orku og vatn, og auðveldar þér að vaska upp stærri hluti á borð við potta.Yfirborð úr krómhúðuðu látúni er endingargott og auðvelt að þrífa.
Þynnri borðplata með beinum köntum og plasthúðuðu yfirborði með marmaraáferð passar í nútímaleg og hefðbundin eldhús. Styttu plötuna í lengd sem hentar þér og notaðu meðfylgjandi kantlista á kantana.
SKYDRAG ljósasett er hannað fyrir ENHET línuna – tilvalið bæði sem borðlýsing og til að búa til ákveðna stemningu í eldhúsinu. Með TRÅDFRI spennubreyti og þráðlausum dimmi getur þú auðveldlega kveikt, slökkt og stýrt ljósmagninu.
ENERYDA hnúðar og höldur eru með hefðbundnu útliti en þó til í ýmsum gerðum og litum. Veldu króm, látún eða svart.
Bættu við ENHET aukahlutum til að nýta hirsluna til hins ýtrasta. Engin þörf á að bora! Seldir sér.
Veggháfur eru áhrifamikill – bæði fyrir loftið og útlitið á eldhúsinu. Seldur sér.
Grár grunnur færir rýminu notalegt og hlýlegt andrúmsloft. Tilvalið ef þú vilt látlausan lit sem passar með öllu. Nútímalegt eða sígilt – þitt er valið.
Einstaki blindnaglinn auðveldar samsetningu og festingarnar eru varla sjáanlegar.
Hægt er að bæta við HÅLLBAR flokkunarfötum. Með því að hafa flokkunarfötur undir vaskinum kemur þú upp snyrtilegri flokkunaraðstöðu.
Eftir þínu höfði! Breyttu um lit á hillueiningunum og útlit á borðplötunni og framhliðunum til að búa til nútímalegt, sígilt, stílhreint eða litríkt útlit sem höfðar til þín.
Opin vegghilla nýtir vel plássið yfir borðplötunni. Tilvalinn staður fyrir borðbúnað, áhöld og aðra hluti sem þú notar oft.
Grunnskápur fyrir vask er hentugur staður til að flokka rusl og að aftan er pláss fyrir rör og lagnir.
Grunnskápur með þremur skúffum hentar fyrir minnstu áhöldin og stóra potta. Með skúffum sem hægt er að draga nánast alveg út og því færðu góða yfirsýn og auðvelt aðgengi að innihaldinu.
Bættu við skipulagsvörum á borð við hnífaparabakka og diskastanda til að fullnýta og koma skipulagi á plássið í skápunum og skúffunum, selt sér.
ENHET slá fyrir snaga, ENHET snagar og SKATTÅN ílát auðvelda þér að nýta hvern sentímetra undir opinni ENHET hillueiningu fyrir diskaþurrkur, hnífapör og áhöld.
ENHET fætur eru 12,5 cm og þeir setja grunnskápinn í þægilega hæð og bæta stöðugleika hans.
Opin hirsla veitir þér mikið hillupláss fyrir skálar og minni heimilistæki á borð við brauðrist, blandara og hrísgrjónapott.
Grunnskápur fyrir ofn með aukahirsluplássi í skúffunni að neðan fyrir pönnur, bökunarform eða skurðarbretti.
Fyrirferðarlítið innbyggt helluborð gefur þér kost á að nýta borðplássið betur til að undirbúa matargerðina, selt sér.
ENHET snúningshilla veitir þér þægilegt og auðvelt aðgengi að smáhlutum á borð við lykla, bætiefni og kryddstauka. Hún festist auðveldlega á opnar hillueiningar úr ENHET línunni.
Veggskápur með hurð nýtir vel plássið yfir vaskinum. Tilvalinn fyrir glös og borðbúnað og ver þau fyrir ryki.