10 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
1 pera fylgir; áhrifamikil lýsing á eldunarsvæðið.
Ekkert pláss fyrir þvottavélina? Nýttu aukaplássið í eldhúsinu í hagnýtt pláss fyrir þvottinn.
Fylltu upp í rýmið. Nýttu aukaplássið í eldhúsinu undir uppþvottavél. Þá getur þú slakað á eftir kvöldverðinn, vitandi það að þú sparar tíma, orku og vatn.
Eldhúsið er hannað fyrir ferðaspanhellu og/eða örbylgjuofn – taktu tækið síðan úr sambandi og settu til hliðar til að búa til meira pláss fyrir matargerðina. Kælir/frystir, uppþvottavél eða þvottavél passa undir borðplötuna.
Þynnri borðplata með beinum köntum og plasthúðuðu yfirborði með asksáferð færir eldhúsinu hlýlegt yfirbragð. Styttu plötuna í lengd sem hentar þér og notaðu meðfylgjandi kantlista á kantana.
SKYDRAG ljósasett er hannað fyrir ENHET línuna – tilvalið bæði sem borðlýsing og til að búa til ákveðna stemningu í eldhúsinu. Með TRÅDFRI spennubreyti og þráðlausum dimmi getur þú auðveldlega kveikt, slökkt og stýrt ljósmagninu.
GUBBARP hnúðar og höldur úr hvítu plasti með einföldu og nútímalegu útliti sem passar með mismunandi hurðum og skúffuframhliðum.
Bættu við ENHET aukahlutum til að nýta hirsluna til hins ýtrasta. Engin þörf á að bora! Seldir sér.
FYNDIG vaskur úr ryðfríu stáli, sem er hreinlegt, endingargott og slitsterkt efni.
Hvítar hurðir og skúffuframhliðar færa rýminu ferskt og bjart yfirbragð og allir litir regnbogans passa með! Fallegt og sígilt.
Einstaki blindnaglinn auðveldar samsetningu og festingarnar eru varla sjáanlegar.
Hægt er að bæta við HÅLLBAR flokkunarfötum. Með því að hafa flokkunarfötur undir vaskinum kemur þú upp snyrtilegri flokkunaraðstöðu.
Eftir þínu höfði! Breyttu um lit á hillueiningunum og útlit á borðplötunni og framhliðunum til að búa til nútímalegt, sígilt, stílhreint eða litríkt útlit sem höfðar til þín.
Grunnskápur fyrir vask er hentugur staður til að flokka rusl og að aftan er pláss fyrir rör og lagnir.
Grunnskápur með þremur skúffum hentar fyrir minnstu áhöldin og stóra potta. Með skúffum sem hægt er að draga nánast alveg út og því færðu góða yfirsýn og auðvelt aðgengi að innihaldinu.
Bættu við ferðaspanhellu til að búa til góða eldunaraðstöðu. Auðvelt að koma fyrir í skáp eða hengja á snaga þegar hún er ekki í notkun, til að rýma til á borðinu fyrir aðra hluti. Seld sér.
ENHET slá fyrir snaga, ENHET snagar og SKATTÅN ílát auðvelda þér að nýta hvern sentímetra undir opinni ENHET hillueiningu fyrir diskaþurrkur, hnífapör og áhöld.
ENHET hangandi hilluinnlegg gerir þér kleift að nýta betur plássið á milli hillna í ENHET hillueiningum. Tilvalið til að koma skipulagi á hluti á borð við espressóbolla, krukkur, hárþurrkur eða handklæði.
ENHET fætur eru 12,5 cm og þeir setja grunnskápinn í þægilega hæð og bæta stöðugleika hans.
ENHET snúningshilla veitir þér þægilegt og auðvelt aðgengi að smáhlutum á borð við lykla, bætiefni og kryddstauka. Hún festist auðveldlega á opnar hillueiningar úr ENHET línunni.
Opnir veggskápar nýta vel plássið yfir vaskinum og borðplötunni. Tilvalinn staður fyrir borðbúnað, áhöld og aðra hluti sem þú notar oft.
Grunnskápur með tvær hurðir fyrir búsáhöld á borð við skálar og lítil heimilistæki.