Stillanlegir fætur til að auka stöðugleika, jafnvel á ójöfnu gólfi.
10 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Það er auðvelt að aðlaga PAX/KOMPLEMENT samsetninguna að þínum þörfum og smekk.
Þú getur auðveldlega fullkomnað samsetninguna þína með lýsingu í PAX teikniforritinu. Þegar þú hefur valið réttu ljósin bætir teikniforritið aukahlutunum sem þú þarft við.
Með glerhillu sérðu hvað er efst í fataskápnum og þú færð innblástur frá uppáhaldstöskum og höttum.
Útdraganlegir bakkar með filtinnleggjum geta geymt skartgripi, úr eða sólgleraugu.
Glerhillan er beint fyrir ofan útdraganlega bakkann og gefur þér góða yfirsýn yfir innihaldið og ver hluti frá ryki eða fötum sem hanga fyrir ofan.