Stillanlegir fætur til að auka stöðugleika, jafnvel á ójöfnu gólfi.
Þú getur skipulagt hirsluna að innan með innvolsi úr HJÄLPA línunni – og snjallar lausnir til að festa að utanverðu finnur þú í LÄTTHET línunni.
Þú getur auðveldlega fest PLATSA hirslurnar saman með klemmum sem fylgja. Það er auðvelt að setja þær upp án tækja eða tóla og það verða ekki nein skrúfugöt.
SANNIDAL línan er hefðbundin og stílhrein og passar því vel inn á flest heimili. Bættu við hnúðum eða höldum í þínum stíl.
Með PLATSA teikniforritinu getur þú hæglega hannað einingu sem hentar þér og þínu heimili.
PLATSA teikniforritið auðveldar þér að skipuleggja hirsluna þína og ákvarða hversu mikið af filtþiljum, höldum og brautum þú þarft á að halda.