PLATSA
Skápur,
60x40x120 cm, hvítt

8.450,-

ekkert valið
Magn: - +
PLATSA
PLATSA

PLATSA

8.450,-
Vefverslun: Til á lager
Raðaðu PLATSA hirslunni upp eftir þínu höfði – há eða lág, undir hallandi þaki eða eftir heilum vegg. Hægt er að setja hana saman á nokkrum mínútum með einföldum „smellum“. Bættu við hurðum og innvolsi eins og þú þarft.
PLATSA skápur

Hirsla sem breytist með þér

Á heimilinu er pláss oft af skornum skammti og því getur reynst erfitt að finna öllu sinn stað. Með PLATSA hirslunum vildum við hanna einfaldar fjölhæfar hirslur sem þú getur endurskipulagt, bætt við og raðað saman eins og þér hentar, hvort sem það er lóðrétt, lárétt eða á milli tveggja hluta. Það að auki þurfti verðið að vera lágt en gæðin mikil. Lausnin: Rétt gæði á réttum stað.

„Allt sem þú þarft eru hendurnar,“ segir vöruhönnuðurinn Freddy Kramer um leið og hann smellir saman hverjum PLATSA rammanum á fætur öðru, Já, smella. Leyndarmálið er festing sem kallast blindnagli. Freddy heldur áfram að útskýra fyrir okkur hvers vegna það er mikilvægt að auðvelt sé að setja vöruna saman og taka hana aftur í sundur. „Heimilislíf fólks breytist meira nú til dags – við flytjum oftar, búum smærra og deilum jafnvel heimili með öðrum og því breytast þarfir okkar reglulega.“

Taka í sundur og setja aftur saman

Freddy sýnir okkur hvernig hægt er að raða skápunum saman lóðrétt, lárétt eða eins og tröppur og hvernig hægt er að bæta við hillum, vírgrindum, fataslá, skúffum og hurðum. „Það er einnig hægt að nýta ytra byrðið. Þú getur sett þar snaga eða fataslá sem fest er á milli tveggja skápa.“

Ást í hvítum kassa

Til að PLATSA endist vel eru gæði jafnmikilvæg og sveigjanleiki og einföld samsetning. En að auka gæði án þess að hækka verðið er ekki auðvelt. „Gæði á réttum stað,“ segir Freddy og opnar skáp. „Yfirborðið á hurðinni sem þú sérð og snerti á hverjum degi, er með mattri filmu með fínni áferð og það sem þú sérð ekki innan í skápnum er með einfaldari grunnfilmu.“ PLATSA verkefnið tók mikinn tíma og krafðist mikillar skuldbindingar. En útkoman er góð. „Þessir tómu hvítu kassar eru kannski ekki stórkostlegir í fyrstu sýn en þeir eru í raun hvítir kassar fylltir ást,“ segir Freddy brosandi.

Sjá meira Sjá minna

Efni

Hvað er samsett plata?

Við notum samsettar plötur í mikið af húsgögnunum okkar, til dæmis í borð og fataskápa. Þær eru léttar en samt stöðugar og endingargóðar. Hver plata er gerð með ramma úr spónaplötu, trefjaplötu eða gegnheilum við sem fyllt er upp í með pappa, að mestu endurunnum. Lögun pappafyllingarinnar gerir hana sérlega endingargóða. Platan er svo húðuð með málningu, þynnu eða viðarspóni eftir því hvaða útlit við viljum fá.

Samantekt

Hirsla í þitt rými

Með PLATSA línunni getur þú útbúið hirslulausn fyrir bæði lítil og stór rými. Einingarnar eru léttar og þú getur sett þær saman eins og þú vilt. Þú getur haft hirslurnar háar eða lágar. Undir súð eða eftir endilöngum veggnum. Svo er einfalt að bæta við hurðum, hillum, vírkörfum og snögum eins og þörf er á. Ef þarfirnar breytast getur þú auðveldlega endurskipulagt eða breytt með nýju innvolsi.


Bæta við vörum

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X