Hentar vel þar sem plássið er lítið.
Þú getur auðveldlega útbúið hirslu sem hentar þínum þörfum og rými með því að raða saman skápum og opnum hirslum í mismunandi hæð og dýpt.
Þú getur auðveldlega fest PLATSA hirslurnar saman með klemmum sem fylgja. Það er auðvelt að setja þær upp án tækja eða tóla og það verða ekki nein skrúfugöt.
LÄTTHET línan eykur geymslumöguleikana utan á PLATSA hirslunum.
Með PLATSA teikniforritinu getur þú hæglega hannað einingu sem hentar þér og þínu heimili.
PLATSA teikniforritið auðveldar þér að skipuleggja hirsluna þína og ákvarða hversu mikið af filtþiljum, höldum og brautum þú þarft á að halda.
Lífgaðu upp á heimilið með smá lit. Með bláum PLATSA hirslum getur þú skapað skemmtilegar samsetningar með nútímalegt útlit, til dæmis með KALBÅDEN eða FONNES framhliðum.
Opin hillueining fyrir bækur, föt eða skrautmuni. Notaðu hana eina og sér eða með öðrum hlutum úr PLATSA línunni og hámarkaðu geymslurýmið.