1.950,-
Afsakið!
Það er ekki nóg til á lager fyrir pöntunina þína.
VUKU
Yfirleitt vaknar fólk við fuglasöng og blómailm þegar það sefur í tjaldi. Það sem hvílir í þessu "tjaldi" mun þó aðeins sjá svefnherbergi þegar rennilásinn fer niður. Ástæðan er sú að tjaldið er í raun stök fatahirsla og það sem hvílir í því eru buxur og bolir. Við erum að sjálfsögðu að tala um VUKU, nýju fatahirsluna okkar sem er á frábæru verði og í góðum gæðum. Innblástur fenginn frá snjöllum útileguvörum.
Vöruþróunarteymið glímdi við áskorunina um að búa til góðan fataskáp á góðu verði. Hver prótótýpa olli þeim vonbrigðum því hún dróg úr virkni á einhvern hátt. „Við vildum búa til hagkvæma fataslá með hirslu neðst en að hún væri nákvæmlega það sem viðskiptavinir væru að leita að, eitthvað sem væri lokað og laust við ryk,“ sagði vöruhönnuðurinn Mark D'Souza. „Og fyrir mig var það mikilvægt að gera vandaða vöru.“ Aftur var byrjað upp á nýtt og þá laut niður hugmynd: Fataskápur er lokuð eining, og vitið þið hvað líka? Tjöld.
Starfsfólkið sem vann að VUKU fór í verksmiðju í Víetnam sem hafði reynslu af tjaldhönnun. Það kemur fram í mörgum eiginleikum VUKU: Til dæmis er grindin gerð úr trefjaglerrörum, eins og þeim sem þú sérð í tjöldum. Þær eru stöðugri ef þyngd er sett á rörin, sem er tilvalinn eiginleiki fyrir fatahengi. Þó VUKU er lítill þá komast fjórir til sex vetrarjakkar inn í hann. Það þarf einungis að smella saman fataskápnum, engin tól eru nauðsynleg. Alveg eins og í tjaldi.
Fyrir Mark og samstarfsfélaga var markmiðið alltaf að búa til hagnýta vöru sem stenst kröfur viðskiptavina. „Ég er mjög ánægður með útkomuna því við erum með góða vöru. Það er engin samanburður þegar kemur að styrk og endingu.“
Þegar við framleiðum vörur úr endurunnu pólýester fá PET-flöskur og annað úr pólýester nýtt líf í hlutum eins og vefnaðarvörum, kössum, eldhúsframhliðum og jafnvel ljósum. Þegar þú notar þessar vörur færð þú sömu gæði og virkni og frá vörum úr nýju pólýester. Að sjálfsögðu eru þessar vörur jafn hreinar og öruggar og aðrar vörur. Það sem er samt allra best er að þú stuðlar einnig að minni hráefnisnotkun.
Vöru bætt við óskalistinn þinn
Vara fjarlægð frá óskalistinn þinn
Upprúllað í handhægri pakkningu og því auðvelt að taka með.
Auðvelt að setja saman – engin þörf á verkfærum.
Þú getur auðveldlega þrifið botninn með rökum klút, því hann er úr sama endingargóða plastinu og vinsælu FRAKTA innkaupapokarnir.
Það eru snagar á báðum hliðum – fullkomið fyrir föt, töskur eða aðra hluti sem þú vilt hafa við höndina.
Vörunúmer 803.319.73
1 pakkning(ar) alls
Má ekki þvo. Má ekki setja í klór. Má ekki setja í þurrkara. Má ekki strauja. Má ekki þurrhreinsa.
VARÚÐ! FALLHÆTTA – Húsgagnið getur fallið fram fyrir sig. Festu það við vegg með meðfylgjandi öryggisfestingum.
Húsgagnið þarf að festa við vegg með meðfylgjandi veggfestingu.
Ein fataslá fylgir.
Tveir snagar fylgja.
Fatasláin rúmar um 10-12 skyrtur á herðatrjám.
Lengd: | 76 cm |
Breidd: | 12 cm |
Hæð: | 7 cm |
Heildarþyngd: | 2,12 kg |
Nettóþyngd: | 2,05 kg |
Rúmmál hvers pakka: | 6,3 l |
Aðeins nýjasta útgáfa skjalanna er í boði fyrir niðurhal. Það þýðir að það gæti verið eitthvað öðruvísi í skjalinu sem þú hleður niður og útgáfunni sem fygldi vörunni.
Vörunúmer 803.319.73
Vörunúmer | 803.319.73 |
Vörunúmer 803.319.73
Breidd: | 74 cm |
Dýpt: | 51 cm |
Hæð: | 149 cm |
Vörunúmer: | 803.319.73 |
Pakkningar: | 1 |
Lengd: | 76 cm |
Breidd: | 12 cm |
Hæð: | 7 cm |
Heildarþyngd: | 2,12 kg |
Nettóþyngd: | 2,05 kg |
Rúmmál hvers pakka: | 6,3 l |
Finndu vöruna í versluninni
1 pakkning(ar) alls