Skápurinn er stöðugur á jafnvel ójöfnum gólfum þar sem fætur hans eru stillanlegir.
Hægt er að bæta við HÅLLBAR flokkunarfötum. Með því að hafa flokkunarfötur undir vaskinum kemur þú upp snyrtilegri flokkunaraðstöðu.
ÄSPINGE eldhúskrókur býður upp á opnar og lokaðar hirslur úr blöndu af svörtum málmi og þynnu með asksáferð sem gerir þér kleift að skapa einstaka og persónulega eldhúsaðstöðu.
Eldhúskrókurinn er einfaldur og auðveldur í notkun svo þú getur keypt hann að morgni og eldað veislumat fyrir vinina um kvöldið.
Opnu hangandi hillurnar tvær geta verið staðsettar til vinstri, hægri eða í miðjunni og henta fullkomlega fyrir uppáhaldshlutina þína.
Hlífðarbakið er með lítilli hillu þar sem þú getur geymt dýrgripi eða kryddstauka, kryddjurtir, olíur og edik við höndina þegar þú eldar.
Svarta hurðin sem er úr málmi er með hirslu úr vírum að innan þar sem hægt er að geyma flata hluti eins og lok og skurðarbretti. Hún er alltaf staðsett vinstra megin á eldhúseiningunni.
Hurðin er með asksáferð og passar vel við hangandi hillurnar og skúffurnar sem eru úr sama efni. Hún er alltaf staðsett hægra megin, undir vaskinum.
Þrjár skúffur með filtefni á botninum. Skúffustopparar koma í veg fyrir að skúffurnar detti úr hirslunni. Laus hirsa fyrir áhöld og hnífapör í tveimur skúffum.
Settu snagana upp innan á skápahurðirnar eða á grindina, hvort sem er utan- eða innanverðu. Þú getur gert eldhúsið að þínu með því að hengja upp handklæði og eldhúsáhöld í mismunandi lögun, efnum og lit.
Grindin og svarta hurðin eru úr endingargóðum duftlökkuðum málmi.
Borðplata úr ryðfríu stáli, sem er hreinlegt, endingargott og slitsterkt efni.
Ekki er þörf á að láta sérsníða borðplötuna þar sem gert er ráð fyrir FYNDIG vaski 46×40 cm, LAGAN blöndunartækjum og LILLVIKEN vatnslási. Selt sér.
Þú getur geymt TILLREDA ferðahelluna inni í skáp eða á snaga til að losa um pláss á borðplötunni eða ganga frá eftir máltíðina. TILLREDA örbylgjuofn passar einnig í skápinn. Heimilistæki eru seld sér.