3.950,-/4 stykki
Afsakið!
Það er ekki nóg til á lager fyrir pöntunina þína.
BROR
10 10 ára ábyrgð
Lítur bílskúrinn þinn stundum út eins og hluti af horfinni siðmenningu? Staflar af málningardósum umhverfis bílinn, íþóttabúnaður sem engin notar og kassar með gleymdum áhugamálum. Lina Ringefelt vöruhönnuður hjá IKEA vildi leysa úr þessum vanda. Útkoman: Sterkbyggðu BROR hirslurnar.
Lína og samstarfsfólk hennar könnuðu þarfir fólks þegar það kemur að nýtingu bílskúrsins og komust að því að fólk vill allt frá fullútbúnum tómstundaherbergjum að stað til að umpotta og bílaviðgerða, ásamt því að geyma allt frá stærri verkfærum að árstíðabundnum búnaði. Margir vilja einnig opnar, lokaðar og læsanlegar hirslur sem þola mikinn þunga
„Ég fékk innblástur að hönnuninni af sígildum iðnaðarhúsgögnum, sem notuð voru í verksmiðjum á sjötta áratugi síðustu aldar, ásamt Mekkanó smíðaleikföngum,“ segir Lina. „Hugmyndin var að búa til fallegar hirslur sem gætu borið tvöfalt á við aðrar hirslur sem við framleiddum á þeim tíma.“ Verkfræðingurinn Philip Nedergaard gekk úr skugga um að hirslan þyldi það sem henni var ætlað að bera. „Til að prófa hirslurnar notuðum það sem kallað er „verstu mögulegu aðstæður“ og hlóðum þær með pokum fylltum steinum til að sjá hvort þær gætu í raun borið nánast hvað sem þér gæti dottið í hug að geyma í bílskúrnum,“ segir hann.
Útkoman er stillanleg hirslulína með opnum og lokuðum hirslum ásamt hjólavagni sem bæði er hægt að nota sem færanlega hirslu og vinnustöð. En hugsanlega er helsti kostur línunnar sá að hún nær að sameina fallega hönnun með notagildi. BROR er auðveldlega einnig hægt að nota inni á heimilinu.
BROR hirslurnar eru innblásnar af sígildum iðnaðarhúsgögnum. Rúmgóðum sterkbyggðum húsgögnum sem þola bæði óhreinindi og mikla þyngd, líkt og BROR. Hillan þolir tvisvar sinnum meiri þyngd en venjuleg hilla (3 kg/dm²)! Þar sem hönnunin er stílhrein og einföld, passar hún alls staðar inni á heimilinu – sama hvort umhverfið er rakt, þurrt eða ískalt.
Stál hefur þá einstaka eiginleika að þó að það hafi verið teygt og mótað þá heldur það styrk sínum. Það er notað til að styrkja allt frá skýjakljúfum og bílum að rúmgrindum og útihúsgögnum. Stáliðnaðurinn hefur verið að stefna í átt að orkunýtnari framleiðslu og betri gæðum. Stál tapar ekki eiginleikum þegar það er endurunnið og í dag er það eitt af þeim efnum sem mest er endurunnið í heiminum.
Vöru bætt við óskalistinn þinn
Vara fjarlægð frá óskalistinn þinn
10 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Stoðin er endingargóð, auðveld í þrifum og varin fyrir ryði þar sem hún er úr duftlökkuðu galvaníseruðu stáli.
Þú getur nota aukahillurnar til að búa til meira pláss fyrir fleiri hluti þegar þarfir þínar breytast.
Yfirborðið er slitsterkt, blettaþolið og auðvelt að halda hreinu.
Vörunúmer 103.332.87
1 pakkning(ar) alls
Þurrkaðu af með mjúkum, rökum klút og mildum uppþvottalegi eða sápu, ef þörf krefur.
Notist aðeins innandyra.
Hirslan hefur verið prófuð fyrir notkun í atvinnuskyni og uppfyllir kröfur eftirfarandi staðals: EN 16121.
Til að setja upp örugga og stöðuga einingu með 190 cm stoðum þarf að hafa minnst fjórar hillur eða tvær hillur og einn skáp (ekki er hægt að nota skúffur til að styrkja eininguna).
VARÚÐ! Fallhætta – til að draga úr hættu á að húsgagnið falli fram fyrir sig þarf að festa það tryggilega. Notaðu viðeigandi skrúfur og festingar. Leitaðu til fagaðila ef þú ert ekki viss um hvaða festingar skal nota.
Ef þú festir saman tvær eða fleiri hillueiningar skaltu nota T-tengi fyrir aukin stöðugleika.
| Lengd: | 206 cm |
| Breidd: | 6 cm |
| Hæð: | 6 cm |
| Heildarþyngd: | 5,43 kg |
| Nettóþyngd: | 5,13 kg |
| Rúmmál hvers pakka: | 7,2 l |
Aðeins nýjasta útgáfa skjalanna er í boði fyrir niðurhal. Það þýðir að það gæti verið eitthvað öðruvísi í skjalinu sem þú hleður niður og útgáfunni sem fygldi vörunni.
Vörunúmer 103.332.87
| Vörunúmer | 103.332.87 |
Vörunúmer 103.332.87
| Dýpt: | 4 cm |
| Hæð: | 190 cm |
| Fjöldi í pakka: | 4 stykki |
| Vörunúmer: | 103.332.87 |
| Pakkningar: | 1 |
| Lengd: | 206 cm |
| Breidd: | 6 cm |
| Hæð: | 6 cm |
| Heildarþyngd: | 5,43 kg |
| Nettóþyngd: | 5,13 kg |
| Rúmmál hvers pakka: | 7,2 l |
Finndu vöruna í versluninni
1 pakkning(ar) alls