Ómeðhöndlaður viður er endingargott náttúrulegt efni sem er enn slitsterkari þegar búið er að olíu- eða vaxbera hann.
Gegnheil fura er náttúrulegt hráefni sem verður fallegra með aldrinum.
Þú getur fært hillurnar til og hagað bilinu eftir þínum þörfum.
Breyttu IVAR samsetningunni. Þú getur fært viðarhillurnar og bætt við nýjum hlutum eftir þörfum.
Þú getur tekið skilrúmið úr ef þú vilt stækka hólfið.
Það er auðvelt að færa kassann til þar sem hann er á hjólum.
Flöskurekkinn er fyrir átta flöskur. Einfalt er að setja hann saman án verkfæra.