Ómeðhöndlaður viður er endingargott náttúrulegt efni sem er enn slitsterkari þegar búið er að olíu- eða vaxbera hann.
Þú getur fært hillurnar til og hagað bilinu eftir þínum þörfum.
Þú getur auðveldlega skipt filtefninu í miðjunni út fyrir listaverk eða ljósmynd sem þú elskar.
Hurðin festist beint á stólpann á hillueiningunni – sniðug leið til að búa til lokaða hirslu og nýtt útlit á augabragði.
Þú getur gert húsgögnin þín enn persónulegri með því að bæsa þau eða mála í uppáhaldslitnum þínum.
IVAR hirslur eru úr gegnheilli furu af sjálfbærum uppruna – endurnýjanlegt og náttúrulegt hráefni sem verður fallegra með árunum.
Náttúrulegt viðarmynstur og falleg einkenni gegnheillar furu draga fram þokka viðarins og færa hverju húsgagni einstakt útlit.
Þessar hurðir úr filti færa IVAR hirslunni örlítið hlýlegra og mýkra yfirbragð og auðvelda þér að útbúa lokaða hirslu.
Þú getur fest minnismiða eða myndir á hurðirnar með teiknibólum. IVAR skápurinn gegnir þá einnig hlutverki minnistöflu.