Nýtt
GREJSIMOJS
Hirsla með loki,
kattalaga appelsínugult/hvítt

1.490,-

Magn: - +
GREJSIMOJS
GREJSIMOJS

GREJSIMOJS

1.490,-
Vefverslun: Til á lager
Lítill vinur sem er meira en bara skrautmunur. Hann hentar einnig til að fela litla hluti eins og lykla, hleðslutæki og penna. Úr endingargóðu plasti, minnst 50% af því endurunnið.
GREJSIMOJS hirsla með loki

Leiktu þér með heimilið

Hvað gerist þegar stór hópur hönnuða kemur saman og kafar ofan í heim leikgleðinnar? Þeir hanna vörulínu með dásamlegum loðnum stólaáklæðum, hátalaramúsum, tanngóðri hirslu og margt fleira – skapað til að hvetja til leiks, alla daga og alls staðar á heimilinu.

„Sífellt fleiri foreldrar gera sér grein fyrir mikilvægi leiks fyrir hamingju og vellíðan barna sinna – og vilja leika meira við þau. GREJSIMOJS línan byggir alfarið á þessari innsýn“, segir Karin Blindh Pedersen, þróunarstjóri.

Markmið: Kalla fram bros

Þrátt fyrir að vera byggt á rannsóknum um leik þá var hönnunarferlið jafn skemmtilegt og vörurnar sjálfar. Hver hönnuður var beðinn um að byrja þar sem hann fann fyrir mestri leikgleði, í þeirri hversdagslegu iðju þar sem hann gleymir sér í augnablikinu og einfaldlega skemmtir sér – og hanna þannig hluti sem kalla fram bros. „Fyrir mér er leikgleði lífssýn sem ýtir undir sköpunargleði og fær mig til að trúa því að allt sé mögulegt. Ég mun aldrei leyfa barninu innra með mér að vaxa úr grasi.“ segir Marta Krupinska, einn af hönnuðunum á bak við línuna.

3 ára, 116 ára eða einhvers staðar þar á milli? Fullkomið!

Vörurnar í GREJSIMOJS línunni eru allt frá því að vera litríkar og áberandi yfir í að vera stílhreinar og hlutlausar. Þær sameina skemmtun og notagildi og auðvelda þér að koma leiknum af stað, hvort sem þú ferð alla leið eða vilt frekar fela leikgleðina fyrir allra augum. Þær hvetja til leiks um allt heimilið og veita börnum og fullorðnum innblástur til að gefa leikgleðinni lausan tauminn. Ert þú 3 ára, 116 ára eða einhvers staðar þar á milli? Þá er GREJSIMOJS fyrir þig!

Sjá meira Sjá minna

Hugleiðingar hönnuða

Marta Krupińska hönnuður

„Lekigleði er innri gleði, að finna ástæður til að brosa og deila því með öðrum. Að fá verkefni eins og þetta vekur barnið í mér og það var nákvæmlega það sem gerðist með GREJSIMOJS hirsluna með loki. Hún byrjaði sem lampi, varð að klukku og endaði loks sem leynihólf í dulargervi kattar. Hér geta börn falið dýrmætustu fjársjóðina sína, án þess að nokkurn gruni að hægt sé að opna hana. Skilaboð GREJSIMOJS línunnar eru: leiktu þér meira – og taktu hlutunum ekki of alvarlega!“


Hugmyndir og innblástur

Aðrir keyptu líka

Svipaðar vörur

Vörur sem þú skoðaðir síðast

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X