Skenkur úr hnotuspón með fótum úr gegnheilum aski skapar hlýlegt og náttúrulegt yfirbragð í rýminu.
Sérstök áferð hnotuspónsins gerir hvert húsgagn einstakt.
Þrýstiopnararnir skapa stílhreint útlit því höldur og hnúðar eru óþörf.
Inni í skenknum eru tvær skúffur og tvær stillanlegar hillur úr hnotuspón og gegnheilum við.
Skenkurinn er með stillanlega fætur þannig að hann stendur stöðugur jafnvel þótt gólfið sé dálítið ójafnt.
Hnota er náttúrulega slitsterkt efni. Yfirborðið endist enn betur með verndandi lakki.