Þrýstiopnararnir skapa stílhreint útlit því höldur og hnúðar eru óþörf.
Minímalískur og stílhreinn og því kemur hann vel út í nánast hvaða umhverfi sem er.
Þú getur stillt upp fallegum hlutum á viðarhillurnar og auðveldlega bætt við lýsingu í efra hólfið þar sem þar eru göt sem auðvelda þér að koma snúrum fyrir.
Í skápnum er ein laus hilla og því getur þú lagað hirsluplássið eftir þörfum.
Hentugur skápur sem kemur vel út í ýmsum rýmum heimilisins; til að mynda í stofunni, borðstofunni eða í forstofunni.
Hurðirnar eru nettar og taka lítið pláss þegar þær eru opnar og því hentar skápurinn einnig í rými þar sem plássið er af skornum skammti.
Gegnheilir viðarfætur og viðaráferðin á hillunum færa skápnum glæsilegt útlit.
Auðvelt að setja saman þar sem bakhliðin er fest á með smellufestingu og grindin sett saman með blindnöglum.