Ílátið er gegnsætt og því er auðvelt að sjá innihaldið.
Ílátið er úr eldföstu gleri og því má nota það sem eldfast mót.
Náttúrulegur bambus skapar hlýlegt og líflegt útlit.
Með þéttu loki helst innihaldið ferskt og bragð og ilmur varðveitist betur.
IKEA 365+ lokið úr bambus þolir bæði kulda og raka án þess að verða stökt eða sprungið og hentar því vel inn í kæliskáp – en ekki í frysti.
Stærðin passar í flesta lofsteikingarpotta og hentar vel til að hita, elda eða baka.