Hirslan er á tveimur hæðum og veitir þér því meira pláss á eldhúsbekknum.
Grænmetis- og ávaxtakörfur sem færa eldhúsinu hlýlegan og náttúrulegan blæ. Fallegar á eldhúsbekknum, borðstofuborðinu og jafnvel á gólfi – hentar vel fyrir ávexti og grænmeti sem best er að geyma við herbergishita.
Neðri hlutinn er með loki sem heldur dagsbirtu frá vörunum en á sama tíma loftar vel um – kjöraðstæður fyrir kartöflur.
Handunnið úr náttúrulegum reyr og bambus sem gerir hverja vöru einstaka.
Þegar karfan er ekki í notkun getur þú tekið hana í sundur til að spara pláss.
Á tveimur hæðum til að halda mismunandi matvælum aðskildum til að lengja endingartíma og draga úr matarsóun.