Loftþétt lok varðveitir bæði bragð og ilm lengur.
Það er líka hægt að nota krukkuna sem framreiðsluskál eða hirslu.
Glerið er gegnsætt svo innihaldið sjáist og dregur ekki í sig lykt eða lit, t.d. úr tómatsósu.
Henta vel undir súrsað grænmeti, sultuð ber eða annað heimagert. Einnig er hægt að nota þær fyrir pasta, múslí, te eða kex.
Þú getur skrifað innihald eða dagsetningu beint á krukkuna – eða jafnvel persónulega kveðju ef þú ert að gefa krukkuna í gjöf.
Merktu krukkurnar með penna sem má þurrka af með rökum klút – aftur og aftur.