HÅLLBAR föturnar staflast til að spara pláss. Staflaðu fötum í sömu stærð eða settu minni fötur ofan í stærri fötur.
Föturnar geta staðið einar hvar sem er á heimilinu eða inn í skáp eða skúffu.
Settu HÅLLBAR grind fyrir flokkunarfötur í 80×45 cm eða 80×60 cm MAXIMERA skúffu. Föturnar haldast á sínum stað og þú færð góða yfirsýn og aðgengi að þeim.
Settu flokkunarföturnar eins nálægt vaskinum í eldhúsinu og mögulegt er en þar verður mestallur úrgangur til og hann fer þá síður í gólfið.
Lok sem felur úrganginn fylgir með. Ef þú vilt hafa föturnar opnar eða þarft að þrífa þær er auðvelt að taka lokið af.
Fatan er með rúnnuðum hornum fyrir auðveldari þrif.
Notaðu meðfylgjandi límmiða til að merkja innihaldið. Teiknaðu eða skrifaðu á límmiðana til að auðvelda flokkunina.
HÅLLBAR föturnar eru hannaðar til að koma til móts við mismunandi flokkunarþarfir. Þær henta vel fyrir flokkun á rafhlöðum og ljósaperum eða til að geyma litla hluti eins og svampa, klúta, sprittkerti og vaxliti.