Settu flokkunarföturnar eins nálægt vaskinum í eldhúsinu og mögulegt er en þar verður mestallur úrgangur til og hann fer þá síður í gólfið.
Fatan er með rúnnuðum hornum fyrir auðveldari þrif.
Það er auðvelt að losa fötuna því hún er með niðurfellanlegu handfangi.
Hringurinn efst á fötunni felur ruslapokann og heldur honum á sínum stað. Hægt er að fjarlægja hann fyrir þrif eða ef hann er ekki notaður.
Feldu flokkunina með HÅLLBAR stoðgrind fyrir flokkunarfötur. Hún passar í MAXIMERA skúffu.
Stoðgrindin veitir góðan aðgang og yfirsýn yfir flokkunina og heldur fötunum á sínum stað. Dragðu hana út til að flokka og ýttu henni svo aftur inn.
Lok eru innifalin til að fela úrganginn. Auðvelt er að fjarlægja þau fyrir þrif eða ef þú vilt nota föturnar án loks.
HÅLLBAR föturnar eru hannaðar til að koma til móts við mismunandi flokkunarþarfir. Samsetningin hentar til flokkunar á heimilisúrgangi.
Þú getur einnig notað föturnar sem hirslu fyrir til dæmis salernispappír, innkaupapoka, svampa eða tekerti.
Flokkunarsamsetning með fjórum fötum fyrir blandaðan úrgang.
Notaðu meðfylgjandi límmiða til að merkja innihaldið. Teiknaðu eða skrifaðu á límmiðana til að auðvelda flokkunina.