Mjúkir plastfæturnir vernda undirlagið gegn rispum og gera það að verkum að smáhirslan stendur stöðug.
Heldur öllu í röð og reglu, frá pappír, minnislyklum og hleðslutækjum að snyrtidóti og skartgripum.
Skúffurnar renna léttilega inn og út því á bakinu eru lítil göt sem koma í veg fyrir lofttæmi.
Passar í BILLY bókaskáp og aðrar hirslur með hillum sem eru minnst 26 cm djúpar.