Bekkurinn er með hillum og rennihurðum og hentar vel í lítil rými, forstofu eða gang, þar sem venjulegar hurðir geta verið fyrir.
Hagnýt hirsla fyrir skó, íþróttatöskur og annað sem þú gætir þurft yfir daginn. Netið andar vel og þú getur falið ýmislegt á bak við rennihurðirnar.
Bekkurinn er 35 cm að dýpt og hentar fyrir skó upp í stærð 50. Þú getur aðlagað hæðina á hillunum eftir því sem hentar þér best.
Tylltu þér á bekkinn til að klæða þig í skó eða geymdu skólatöskur á honum.