Nýtt
BRÖGGAN
Strandpoki,
41x28x39 cm/45 l, doppótt marglitt

1.190,-

Magn: - +
BRÖGGAN
BRÖGGAN

BRÖGGAN

1.190,-
Vefverslun: Til á lager
Rúmgóður taupoki með höldum, innri vasa og litríkum doppum. Hentar vel fyrir innkaupin og sundfatnað. Hluti af BRÖGGAN línunni.

Hugleiðingar hönnuða

Ida Pettersson Preutz, hönnuður

„BRÖGGAN strandpokinn er glaðlegur og rúmgóður, tilvalinn þegar þú vilt eyða sumardegi undir berum himni. Notaðu hann til að taka með þér teppi, handklæði og nesti. Í honum er einnig lítill vasi með rennilás fyrir lykla og aðra smáhluti. Ég vona að hann fylgi þér í ófá ævintýri sem þú getur rifjað upp á köldum vetrardögum.“

Form/Hönnunarferli

Skapaðu nýjar sumarminningar

Það sem þú ert með í kringum þig hefur áhrif á þig og litir, mynstur og form varanna í BRÖGGAN línunni eru gerð til að gleðja. Hér finnur þú það helsta til að skapa sumarstemningu á heimilinu og útisvæðinu. Vörurnar búa yfir retró yfirbragði og eru úr endingargóðu efni. Bjóddu fjölskyldu og vinum í heimsókn, fagnaðu sumrinu og skapaðu nýjar minningar.

Efni

Hvað er bómull?

Bómull er ein af vinsælustu náttúrulegu trefjunum í heiminum í dag. Vefnaðarvara úr bómull er mjúk, endingargóð og það er hægt að þvo hana á háum hita. Hún andar einnig vel og dregur í sig raka – sem gerir það að verkum að gott er að hafa hana næst líkamanum. Við hjá IKEA notum meira og meira af endurunninni bómull og kappkostum við að tryggja að öll ný bómull sem við notum sé ræktuð og unnin með minna magni af skordýraeitri, áburði og vatni.


Bæta við vörum

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X