Axlarólin er stillanleg og bólstruð og því er þægilegt að bera bakpokann og hann helst á sínum stað.
Hliðarvasarnir rúma bæði vatnsflösku og stóra regnhlíf.
Á bakhlið bakpokans er bólstrað hólf sem hentar 15" fartölvum og á framhliðinni eru tvö hólf í viðbót – öll með rennilás.
Í bakpokanum er eitt stórt og tvö lítil hólf og tveir pennavasar.
Í stóra hólfinu er lítill aukapoki sem þú getur auðveldlega fjarlægt þar sem hann er festur með frönskum rennilás.
Ef þú vilt halda á bakpokanum getur þú fjarlægt ólarnar og geymt þær í hólfinu á bakhliðinni.
Lyklarnir enda aldrei á botninum þar sem þú getur fest þá á lyklakippu í bakpokanum.
Þú getur losað röndóttu lyklakippuna á framhliðinni – snjallt ef þú vilt nota hana fyrir lyklana þína eða festa hana við aðra tösku.
Grænt fóðrið auðveldar þér að sjá og finna hlutina.