Ekki er hægt að nota ljósaperuna með dimmi.
LED ljósaperur eru bæði orkunýtnar og endingargóðar og líftíminn er um 15.000 klst. Þær hafa því tvo eiginleika sem gera þér kleift að spara, bæði í peruskiptum og rafmagni.
LED ljósaperur fást með mismunandi ljóshitastigi sem gerir birtuna ýmist hlýrri eða kaldari. Þessi tiltekna ljósapera gefur frá sér hlýtt ljós (2.200 Kelvin).
Þú getur breytt hæð ljóssins örlítið þegar þú hefur hengt það upp.
Loftljósið kemur afar vel út yfir borðstofuborði eða eldhúseyju.