Ljósið veitir notalega birtu sem hentar fyrir máltíðir og góða stefnulýsingu til að lýsa upp borðstofuborðið eða barborðið.
Þú getur deyft lýsinguna þráðlaust og aðlagað eftir þörfum.
Með LED lýsingu notar þú allt að 85% minna af orku og hún endist um 20 sinnum lengur en hefðbundin glópera.
Þú getur hengt loftljósið upp fyrir ofan borðstofuborðið eða nær loftinu fyrir almenna lýsingu í herbergið.
Með því að stýra ljósmagninu getur þú breytt stemningunni í rýminu.
Meðfylgjandi ljósgjafi er endingargóður, en ef hann bilar og hættir að lýsa þá er hægt að skipta honum út.
Með því að tengja vöruna við DIRIGERA gáttina opnast fleiri möguleikar og þú getur stýrt henni ásamt öðrum snjallvörum í IKEA Home smart appinu.