LED ljósaperan gefur frá sér sömu hlýlegu birtuna og hefðbundin 14 W ljósapera – en án þess að flökta eða gefa frá sér hljóð. Það er einmitt það sem þú þarft til að skapa notalega stemningu í rýminu.
LED ljósaperur eru bæði orkunýtnar og endingargóðar og líftíminn er um 15.000 klst. Þær hafa því tvo eiginleika sem gera þér kleift að spara, bæði í peruskiptum og rafmagni.
Litendurgjafargildi (CRI) ljósaperu gefur til kynna hversu vel ljósið sýnir liti á réttan hátt. Gildi yfir 80 er gott og í nálægð við náttúrulega birtu. Þessi ljósapera er með gildið 80.
Þú getur stillt lengd rafmagnssnúrunnar. Þegar þú hefur fundið rétta hæð ljóssins getur þú vafið snúrunni inn í loftstykkið og fest upp í loftið.
LED ljósaperur fást með mismunandi ljóshitastigi sem gerir birtuna ýmist hlýrri eða kaldari. Þessi tiltekna ljósapera gefur frá sér hlýtt ljós (2.400 Kelvin).