LED lýsing notar allt að 85% minna af orku og endist um 20 sinnum lengur en hefðbundin glópera.
Með LED snjallljósaperu getur þú deyft og breytt litnum á ljósinu og þannig lagað lýsinguna að því sem þú ert að gera hverju sinni. Hafðu til dæmis daufa og hlýlega birtu yfir matarborðinu og bjartari, kaldari birtu fyrir vinnu.
Það er hægt að velja liti, breyta ljóslitnum úr köldum í hlýjan, deyfa, kveikja og slökkva með fjarstýringunni.
Þú getur notað fjarstýringuna á allt að 10 snjallljósgjafa sem bregðast allir við á sama hátt.
Ef þú bætir við fjarstýringu getur þú valið á milli níu mismunandi lita og litatóna.
Fáðu meira úr snjalllýsingunni og tengdu ljósaperurnar við DIRIGERA gátt fyrir snjallvörur. Láttu lýsinguna um að skapa rétta andrúmsloftið með því að nota tímastilla og senur í IKEA Home smart appinu.