IKEA 365+
Diskur,
15 cm, hvítt

495,-

Magn: - +
IKEA 365+
IKEA 365+

IKEA 365+

495,-
Vefverslun: Til á lager
Í IKEA 365+ línunni er allt sem þú þarft fyrir matarborðið. Einföld og falleg lína sem hægt er að hressa upp á með litum og aukahlutum. Úr harðpostulíni svo hún heldur fegurð sinni í ókomin ár.

Samantekt

Allan ársins hring

Þetta er IKEA 365+ línan, sem stendur fyrir allt sem við teljum að einkenni góða hversdagsvöru. Klassískir litir og hönnun sem aldrei fer úr tísku og passar vel við aðra hluti. Harðgerð efni sem þola daglega notkun. Og einnig skemmtileg smáatriði sem gerir eldamennskuna auðvelda og skemmtilega - alla daga ársins. Við vonum að þú sért því sammála.

Hugleiðingar hönnuða

Henrik Preutz, Wiebke Braasch, Ola Wihlborg og Nike Karlsson, hönnuðir.

„Nú til dags fær fólk innblástur að matreiðslu og borðhaldi hvaðanæva að úr heiminum. Við höfðum þetta í huga þegar við hönnuðum IKEA 365+. Borðbúnaðurinn er einfaldur en þó flott hönnun sem virkar fyrir allar gerðir af mat og við öll tækifæri. Diskarnir eru með háum köntum og því er auðvelt að halda á og borða af þeim. Skálarnar henta líka fyrir framreiðslu og nýtast fyrir allt frá salati að morgunkorni og kökur líka. Markmið okkar var að gera hversdagslífið auðveldara – og aðeins íburðarmeira.“

Gæði

Þolir mikla notkun

IKEA 365+ borðbúnaðurinn er gerður úr sérvöldu harðpostulíni og er þess vegna endingargóður, sterkur og höggþolinn. Það þýðir að þú getur notað hann á hverjum degi í mörg, mörg ár, án þess að hann missi sinn náttúrulega gljáa og lit – og án þess að hafa áhyggjur af því að hann brotni. Þú getur einnig sett hann í uppþvottavél.

Eiginleikar

Auðvelt að nota og geyma

IKEA 365+ virkar fyrir öll tækifæri og alls konar mat. Hvern hlut má nota á ýmsa máta. Það er t.d. frábært að nota skálarnar bæði til að borða og bera fram í. Borðbúnaðurinn er líka hannaður þannig að það er gott að halda á honum og geyma, því er hægt að stafla flestum hlutunum. Hentugt - alla 365 daga ársins!

Efni

Högghelt

Harðpostulín er harðgerðara en annar leir. Þess vegna er hægt að hafa leirmuni úr harðpostulíni þynnri en þá sem er gerðir úr steinleir eða leir. Það þýðir að það er bæði létt og endingargott - og má fara í uppþvottavél. Nytsamleg blanda.


Bæta við vörum

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X