695,-
Afsakið!
Það er ekki nóg til á lager fyrir pöntunina þína.
DYRGRIP
Kristall hefur lengi verið eftirsóttur vegna ljómans, gæðanna og hljómsins sem hann myndar þegar glösum er klingt eða þeim strokið. En hefðbundinn kristall er framleiddur með því að blanda blýi við gler, efni sem er bæði heilsuspillandi og ósjálfbær. Við höfum ákveðið að nota ekki blý í vörurnar okkar. Því völdum við kristalgler í DYRGRIP glösin okkar. Og kölluðum til þekktan sænskan glerhönnuð.
„Kristalgler býður upp á svipaðan ljóma og tærleika og hefðbundinn kristall en er án blýs,“ útskýrir Misco Veselinovi sem er sérfræðingur í gleri hjá IKEA. „Og fallegi ómurinn er þarna enn.“
Einn hluti starfsins hjá Misco er að tryggja að vörurnar okkar standist eða fari jafnvel fram úr öllum öryggis- og gæðareglum sem settar eru af mismunandi löndum og stofnunum. „Við finnum ströngustu reglurnar sem til eru á heimsvísu og notum þær fyrir vörurnar okkar,“ segir Misco. „Það sama á við um styrkleika og endingu. Við leitum eftir ströngustu stöðlunum og reynum að standast þá.“ Kristalgler er sérstaklega endingargott gler. Það brotnar síður en aðrar tegundir af gleri, má fara í uppþvottavél og heldur ljómanum lengur.
DYRGRIP var hannað af virtum sænskum gler- og keramíkhönnuði Ingegerd Råman. Verðlaunaverk hennar eru alltaf yfirlætislaus blanda af virkni og fegurð. Ingegerd segir hvað fór í gegnum huga hennar við hönnunin og hvernig hún fann réttu hlutföllin á milli fótarins, standsins og belgsins. Hún lagði sig fram við að ná fram fullkomnu samræmi en dregur úr mikilvægi sínu. „Þú þarft ekki að vita þetta. Þú átt bara að finna það þegar þú lyftir glasinu, “ segir hún um leið og hún útskýrir hvernig gæði kristalglersins ýtir undir eiginleika drykkjarins. „Það er drykkurinn sem á að vera í brennidepli,“ útskýrir hún. Aðalskrautið er það sem þú setur í glasið.“
„Mér finnst mikilvægt að það sé jafnvægi á milli hagnýtingar og fegurðar, en ég tel mig hafa fundið rétt jafnvægi í hönnuninni á DYRGRIP glösunum. Kristalglerið minnir á norrænan kulda og glært glerið leyfir litnum á drykknum að njóta sín. Það er spennandi tilhugsun að fólk um allan heim muni koma til með að nota og njóta glasanna og ég vona að allir muni njóta þeirra eins mikið og ég."
Vöru bætt við óskalistinn þinn
Vara fjarlægð frá óskalistinn þinn
Glasið er með stórum belg sem verður til þess að það verður meira bragð og lykt af drykknum.
Kristalglerið er með fallegan gljáa og gefur frá sér fallegan tón þegar þú skálar við fjölskyldu og vini.
Glerið er tært, líkt og kristalgler, en er alveg blýlaust.
Vörunúmer 203.093.00
1 pakkning(ar) alls
Má fara í uppþvottavél.
Þvoðu fyrir fyrstu notkun.
Efnið í vörunni er mögulega endurvinnanlegt. Vinsamlega athugaðu reglur um endurvinnslu á þínu svæði og hvort þar sé að finna endurvinnslustöð.
Lengd: | 22 cm |
Heildarþyngd: | 0,21 kg |
Nettóþyngd: | 0,21 kg |
Rúmmál hvers pakka: | 1,6 l |
Þvermál hvers pakka: | 10 cm |
Vörunúmer 203.093.00
Vörunúmer | 203.093.00 |
Vörunúmer 203.093.00
Hæð: | 21,5 cm |
Rúmtak: | 58 cl |
Vörunúmer: | 203.093.00 |
Pakkningar: | 1 |
Lengd: | 22 cm |
Heildarþyngd: | 0,21 kg |
Nettóþyngd: | 0,21 kg |
Rúmmál hvers pakka: | 1,6 l |
Þvermál hvers pakka: | 10 cm |
Finndu vöruna í versluninni
1 pakkning(ar) alls