UPPFYLLD vörulínan gerir eldhúsið litríkara.
Ávaxtaskerunum er staflað upp á grunnstykkið þegar þeir eru ekki í notkun. Þannig taka þeir minna pláss og beitt blöðin eru varin.
Ávaxtaskerarnir skera í mismunandi lögun, veldu þann sem hentar best. Auðvelt að nota, settu ávöxtinn eða grænmetið á bretti og þrýstu skeranum niður, alveg í gegn.
Dökkgræni ávaxtaskerinn hentar vel til þess að skera epli og taka kjarnann úr þeim.
Appelsínuguli skerinn er fyrir sítrusávexti.
Ljósgræni skerinn hentar fyrir ávexti sem eru 11 cm í þvermál eða minni.
Grunnstykkið heldur ávextinum á sínum stað og gerir skerann öruggari í notkun.