Sérstaklega hannað fyrir börn til að allir í fjölskyldunni geti hjálpað til í eldhúsinu. Öruggt og auðvelt í notkun.
Hnífarnir eru með rúnnuðum oddum til að draga úr slysahættu.
Stöðugt og gott grip því rúnnuð brík við enda skaftsins kemur í veg fyrir að fingur renni undir hnífsblaðið við notkun.
Hnífahlífarnar vernda hnífsblöðin í eldhússkúffunni og er einnig hentug ef þú tekur hnífana með þér, til dæmis í nestisferðina.
Lögunin og efnið í sköftunum veita gott grip.
Annar hnífurinn er með sagtenntu blaði til að auðvelda þér að skera matvæli eins og brauð og tómata.