Sjálfbærara efni
APTITLIG
Skurðarbretti,
45x36 cm, bambus

2.790,-

Magn: - +
APTITLIG
APTITLIG

APTITLIG

2.790,-
Vefverslun: Til á lager
Bambus er fallegur og auðveldur í umhirðu. Hann er náttúrulegt efni sem bætir hlýju og lit í eldhúsið og veitir jafnframt harðgert yfirborð sem er gott að skera og saxa á.

Efni

Hvað er bambus?

Bambus er sterkur, sveignalegur og vex hratt – það er einnig hægt að nota hann á marga vegu og því er hann frábært endurnýjanlegt hráefni. Hann er í raun grastegund sem vex án þess að þurfa á áburði eða vökvun á að halda. Þegar hann hefur verið skorinn upp vaxa nýir stilkar sem hægt verður að nýta eftir fjögur til sex ár. Við hjá IKEA notum bambus meðal annars í húsgögn, baðherbergisvörur, körfur og lampaskerma og erum stöðugt að leita að nýjum leiðum til að nýta þetta fjölhæfa hráefni.

Hvernig á að velja

Skurðarbretti fyrir hvert verkefni

Það eru til margar gerðir af skurðarbrettum og þau eru öll góð fyrir mismunandi hluti. Eldhúsverkin eru mun hreinlegri ef þú notar sér skurðarbretti fyrir mismunandi hráefni. Mundu að skurðarbretti eiga að vera mjúk til að eyðileggja ekki bitið á hnífnum – efni eins og viður eða plast eru ákjósanlegust. Viðarskurðarbretti eru varanlegri en plastskurðarbretti en það er auðveldara að lyfta og þrífa plastið. Þú ættir að hafa not fyrir báðar gerðirnar.

Energy and Resources

Bambus: Hentar vel í verkið

APTITLIG skurðarbrettin eru gerð úr bambus sem vex hratt og endist lengi. En þessi efniviður er endurnýjanlegur og býður upp á mjög endingargott og rispuþolið yfirborð. Því henta brettin vel fyrir allt frá því að saxa niður fínlega steinselju að því að skera gulrætur.

Samantekt

Olía ver og viðheldur

Skurðarbretti úr við er stöðugt og fer vel með hnífana. Með almennilegu viðhaldi getur það nýst þér lengi. Berðu olíu á brettið áður en þú byrjar að notar það og svo reglulega eftir það. Þvoðu það alltaf í höndunum og láttu það liggja á hlið á meðan það þornar. Þegar brettið fer að líta illa út skaltu pússa það og bera á það olíu – þá verður það aftur eins og nýtt.


Bæta við vörum

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X