UPPFYLLD skálarnar gera þér kleift að undirbúa gómsæta rétti og halda svæðinu snyrtilegu á meðan.
Smeygðu skálinni undir skurðarbrettið og ýttu síðan niðurskornu grænmeti eða kjöti yfir á skálina.
Þegar skálin er orðin full er auðvelt að taka hana frá brettinu og hella innihaldinu í pönnuna eða á salatið.
Skálar sem gera þér kleift að undirbúa eldamennskuna eins og fagfólk gerir – á skipulagðan máta. Bæði henta skálarnar undir niðurskorin matvæli og hýði og annað rusl.
Botn skálarinnar er aðeins 1 mm að þykkt þar sem hún opnast og hefur því ekki áhrif á stöðugleika skurðarbrettisins.
Það getur verið sniðugt að nota eina skálina fyrir lífrænan úrgang sem fellur til (svo sem hýði) til þess að flýta fyrir frágangi og halda skipulagi á eldamennskunni.
Hægt er að stafla skálunum saman og þær taka því lítið pláss í skúffunni.
UPPFYLLD vörulínan gerir eldhúsið litríkara.