SLUKA
Hitabrúsi,
1.8 l, ryðfrítt stál

3.790,-

Magn: - +
SLUKA
SLUKA

SLUKA

3.790,-
Vefverslun: Til á lager
Búið að setja upp búðir í sófanum fyrir gott sjónvarpskvöld eða á leið í partý? Hvort heldur sem er þá heldur SLUKA hitabrúsinn drykknum heitum eða köldum.
SLUKA hitabrúsi

Dagurinn verður betri með hverjum bolla

Ert þú búin að fá þér kaffi eða te í dag? Samkvæmt tölfræðinni er það líklegt. Heitir drykkir eru vinsælustu drykkirnir á eftir vatni. Þeir geta sett punktinn yfir i-ið við hvaða augnablik sem er. Þess vegna ákváðum við að endurnýja vörurnar okkar sem búa til hinn fullkomna bolla – frá teasíu og katli til mjólkurþeytara.

Malin Ljungström tók þátt í að þróa vöruúrvalið og deilir með okkur innsýn sinni. „Ilmurinn af kaffi og tei færir mörgum notalega og heimilislega tilfinningu. Þar sem við viljum bæta hversdagslíf fólks bjóðum við upp á vörur sem gera fleira fólki kleift að upplifa þessar notalegu stundir.“

Vöruþróun sem skiptir máli

Malin og samstarfsfólk hennar könnuðu kaffi- og temenningu í þaula til að komast að því hvaða hluti fólk getur ekki verið án. Þau töluðu við sérfræðinga og könnuðu lífs-, matar- og drykkjarvenjur „Við vildum koma með vörur sem skipta máli, svo við einbeittum okkur að fáum en vandlega völdum vörum,“ segir hún. Teymið vann með rannsóknastofu IKEA í Älmhult í Svíþjóð. Það er IKEA útgáfa af James Bond rannsóknarstofu þar sem frumgerðir eru rannsakaðar og metnar. „Eitt af því sem við athuguðum var að hitabrúsarnir héldu vökvanum heitum lengi. Ásamt því að glerbollarnir og -könnurnar væru endingargóð og þægileg þótt þau líti út fyrir að vera létt,“ segir Malin.

Fyrir mismunandi smekk og fjárhag

Hvernig sem þú vilt hafa bollann þinn þá getur þú fundið eitthvað sem gerir hann enn betri í vöruúrvalinu. Það er einnig eitthvað fyrir allar stærðir af veskjum. „Þetta heyrir undir að gera heimilislífið betra Leið til að gera daglegt líf þægilegra með einum bolla í einu,“ segir Malin að lokum.

Sjá meira Sjá minna

Efni

Hvað er ryðfrítt stál?

Þú finnur ryðfrítt stál í allt frá byggingamannvirkjum og bílum til vaska og hnífa, Það er auðvelt að sjá hvers vegna það er notað í svona margt. Ryðfrítt stál er hart og endingargott og tærist lítið – sem sagt ryðgar ekki. Það inniheldur vanalega lítið af nikkeli og í IKEA vörur er aðallega notað nikkelfrítt stál. Eins og með marga aðra málma er hægt að endurvinna það aftur og aftur í nýja slitsterka hluti – án þess að það tapi dýrmætum eiginleikum sínum.

Samantekt

Innihaldið skiptir öllu máli

Hitabrúsi heldur drykknum heitum, vegna þess að hann er tvöfaldur og einangraður. Innri veggirnir eru ýmist úr plasti, gleri eða málmi. Við notum hins vegar eingöngu gler eða málm í okkar vörur, en það er vegna þess að plast heldur ekki eins vel hita. Ef þú notar brúsann aðallega heima við, þá er hentugast að hafa hann úr gleri. En ef þú ert að skipuleggja ferðalag eða skógarferð, þá er best að nota málmbrúsa. Hann þolir meira álag og fleiri högg og hentar þess vegna betur í nestiskörfuna eða bakpokann.


Bæta við vörum

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X