3.790,-
Afsakið!
Það er ekki nóg til á lager fyrir pöntunina þína.
UNDERLÄTTA
Ert þú búin að fá þér kaffi eða te í dag? Líklega, samkvæmt tölfræðinni. Heitir drykkir eru vinsælustu drykkirnir á eftir vatni. Þeir geta sett punktinn yfir i-ið við hvaða augnablik sem er. Þess vegna ákváðum við að endurnýja vörurnar okkar sem búa til hinn fullkomna bolla – frá teasíu og katli til mjólkurflóara.
Við drekkum kaffi og te til að auðvelda okkur að vakna á morgnanna, halda okkur vakandi á næturnar og auðvitað af því að það er svo gott. Malin Ljungström tók þátt í að þróa vörurnar og deilir með okkur sinni innsýn í kaffi- og temenningu. „Ilmurinn af kaffi og tei færir mörgum notalega og heimakæra tilfinningu. Þar sem við viljum bæta hversdagslíf fólks bjóðum við upp á vörur sem gera fleira fólki kleift að upplifa þessar notalegu stundir."
Tískubylgjur koma og fara. Þegar það kemur að kaffi og tei þá erum við fljót að tileinka okkur ákveðna siði. Við könnum og reynum nýja hluti og viljum geta búið til eins gott kaffi heima og fæst á góðum kaffihúsum. „Í dag telst nokkuð svalt að vera vel að sér í einhverju. Ég tel að það færi okkur mikla gleði þegar við getum gert eitthvað eins vel og sérfræðingarnir, án stórra útgjalda og sjaldséðra tækja og tóla," segir Malin.
Malin og samstarfsfólk hennar könnuðu í þaula hefðbundna kaffi- og temenningu til að komast að því hvaða tækja eða tóla fólk getur ekki verið án. Þau töluðu við sérfræðinga, könnuðu hvernig fólk býr, hvað það borðar og drekkur til að fá einhverjar hugmyndir um nauðsynlegar vörur. „Við vildum hanna vörur sem gera gæfumuninn. Eldhús fullt af tækjum auðveldar ekki endilega að búa til gott kaffi eða te og því einbeittum við okkur að því að búa til fáar en vandlega valdar vörur," segir hún. Til að tryggja góð gæði og góða eiginleika vann teymið í miklu samstarfi við IKEA Test Lab í Älmhult, Svíþjóð. Það er IKEA útgáfa af James Bond rannsóknarstofu þar sem frumgerðir eru rannsakaðar og metnar. „Við könnuðum til dæmis hvort hitabrúsinn gæti haldið vökva heitum í langan tíma og að glerbollar og -pottar væru sterkir og þægilegir jafnvel þó þeir virðist fíngerðir og léttir," segir Malin.
Þú finnur ryðfrítt stál í allt frá byggingamannvirkjum og bílum til vaska og hnífa, Það er auðvelt að sjá hvers vegna það er notað í svona margt. Ryðfrítt stál er hart og endingargott og tærist lítið – sem sagt ryðgar ekki. Það inniheldur vanalega lítið af nikkeli og í IKEA vörur er aðallega notað nikkelfrítt stál. Eins og með marga aðra málma er hægt að endurvinna það aftur og aftur í nýja slitsterka hluti – án þess að það tapi dýrmætum eiginleikum sínum.
Vöru bætt við óskalistinn þinn
Vara fjarlægð frá óskalistinn þinn
Heldur innihaldinu heitu/köldu lengi, því það þarf ekki að taka lokið alveg af þegar hellt er.
Innra byrðið er úr málmi og því höggþétt.
Vörunúmer 303.602.32
1 pakkning(ar) alls
Má aðeins þvo í höndunum. Má ekki fara í örbylgjuofn. Má ekki setja í ofn. Er ekki ætlað á eldavél. Þolir ekki frost.
Ekki ætlað til notkunar á helluborði eða hitaplötu.
Heldur innihaldinu heitu/köldu í allt að sex klukkustundir.
Þvoðu fyrir fyrstu notkun.
Til að hella; snúðu lokinu í þá átt sem örin bendir þar til það stoppar. Til að opna og fjarlægja lokið; haltu áfram að snúa því í þá átt sem örin bendir, jafnvel þótt þú heyrir smá smell.
Lengd: | 22 cm |
Breidd: | 17 cm |
Hæð: | 13 cm |
Heildarþyngd: | 0,81 kg |
Nettóþyngd: | 0,80 kg |
Rúmmál hvers pakka: | 4,9 l |
Aðeins nýjasta útgáfa skjalanna er í boði fyrir niðurhal. Það þýðir að það gæti verið eitthvað öðruvísi í skjalinu sem þú hleður niður og útgáfunni sem fygldi vörunni.
Vörunúmer 303.602.32
Vörunúmer | 303.602.32 |
Vörunúmer 303.602.32
Hæð: | 22 cm |
Rúmtak: | 1,2 l |
Vörunúmer: | 303.602.32 |
Pakkningar: | 1 |
Lengd: | 22 cm |
Breidd: | 17 cm |
Hæð: | 13 cm |
Heildarþyngd: | 0,81 kg |
Nettóþyngd: | 0,80 kg |
Rúmmál hvers pakka: | 4,9 l |
Finndu vöruna í versluninni
1 pakkning(ar) alls