Bakkinn hentar vel til að bera fram en er einnig fallegur einn og sér eða til að stilla upp einhverjum fallegum munum á.
Hluti af STOCKHOLM línunni sem hampar skandinavískri hönnun.
Ramminn er úr gegnheilli eik og botninn úr léttara efni. Það er því létt að bera bakkann á milli herbergja.
Bakkinn er flottur og góður til ýmissa nota. Hann hefur fágað handverksyfirbragð. Fullkominn undir góðgæti eða STOCKHOLM 2025 glös.
STOCKHOLM 2025 bakkarnir eru hannaðir til að passa saman, sá minni passar í þann stærri.