Sjálfbærara efni
SOARÉ
Diskamotta,
37 cm, vatnahýasinta

695,-

Magn: - +
SOARÉ
SOARÉ

SOARÉ

695,-
Vefverslun: Til á lager
Jafn viðeigandi og falleg á sumarkvöldum og á veturna. Handgerð úr vatnahýasintu, plöntu sem finnst í hitabeltislöndum og er tekin úr vatnsfarvegum til að koma í veg fyrir að hún stífli farveginn.
SOARÉ diskamotta

Viðskiptaákvörðun sem eflir konur

SOARÉ diskamotturnar eru svo vinsælar að þær hurfu næstum af markaðnum. Hvernig stendur á því? Salan stefndi að því að verða óviðráðanleg þegar kom að því að framleiða handunna gæðavöru úr náttúrulegum trefjum. Teymið á bak við SOARÉ var byrjað að undirbúa að skipta þeim út fyrir diskamottur sem framleiddar voru í vél. En áður en af því varð fóru þau í ferðalag sem breytti öllu.

Mekong-áin í Víetnam er stútfull af vatnaliljum, líflegri grænni plöntu sem SOARÉ er unnið úr. Hún vex ótrúlega hratt sem gerir hana að dýrmætri endurnýjanlegri auðlind, en hún er einnig hættuleg þar sem hún á það til að stífla vatnsfarveginn. Fólk sem býr við ánna, aðallega konur, týna vatnaliljur og vefa stilkana saman. Þannig halda þær vatnsfarveginum opnum, viðhalda handverkshefðum og afla sér aukatekna.

Eflir konur

Lillemor Franzén og samstarfsfólk upplifðu að sitja á heimilum vefarana og fengu að hlusta á sögur þeirra um hvernig SOARÉ bætti líf þeirra. „Ein gömul kona sagði okkur að dóttir hennar væri að læra að vera kennari þökk sé SOARÉ,“ segir hún. Venjulega safnast tveir til þrír vefarar saman til að vinna á einhverju heimilanna. Þær spjalla, hlæja og líta til með búpeningnum og börnunum sem eru of ung til að fara í skóla. „Þegar ég sé eitthvað svona nær það mér alveg og ég verð svo stolt af því að vinna hjá IKEA,“ segir Lillemor.

Betri viðskiptaákvarðanir

Teymið ákvað að lausnin á því að uppfylla aukna eftirspurn á diskamottum úr náttúrulegum trefjum væri að koma með aðrar tegundir sem væru gerðar í vélum. Þá fá viðskiptavinirnir meira úrval og eftirspurnin fyrir SOARÉ myndi jafnast út. Hægt er að framleiða fleiri eintök af diskamottum sem framleiddar eru í vélum og framleiðslan á SOARÉ getur haldið áfram óbreytt. „Við höfum alltaf ætlað okkur að stunda góð viðskipti, og við gerum það“ segir Lillemor. „Á ferð minni til Víetnam komst ég að því að tilgangur SOARÉ var meira en bara viðskipti.“

Sjá meira Sjá minna

Efni

Leggðu á borð með aðstoð frá náttúrunni

SOARÉ diskamotturnar eru gerðar úr ofinni vatnahýasintu sem er falleg og afar hraðvaxin planta. Að uppskera, þurrka og vefa plönturnar heldur vatnsfarveginum opnum, heldur við handverkshefðum og aflar vefurunum lífsviðurværis sem veitir þeim meðal annars tækifæri til menntunar.


Bæta við vörum

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X