995,-
Afsakið!
Það er ekki nóg til á lager fyrir pöntunina þína.
TÅNUM
Motta sem skiptir máli
TÅNUM mottan er gott dæmi um hvernig við sameinum ástríður okkar fyrir umhverfismálum og betra hversdagslífi. Hún er úr afgangsefnum úr rúmfatalínunum okkar og hver motta er handgerð af hæfileikaríku handverksfólki á góðum vinnustað. Engar tvær mottur eru eins og því er TÅNUM einstök viðbót fyrir hvert heimili. Það sem skiptir þó enn meira máli er að mottan skapar bjartari framtíð fyrir fólkið sem býr hana til. Engar tvær mottur eru eins og því er TÅNUM einstök viðbót fyrir hvert heimili. Það sem skiptir þó enn meira máli er að mottan skapar bjartari framtíð fyrir fólkið sem býr hana til.
Hefðbundið sænskt handverk var kveikjan að þessum mottum þar sem þær eru ofnar úr afgangsefni og því nýtum við auðlindir okkar á góðan og ábyrgan máta. Hugmyndin að TÅNUM mottunum kemur frá ungum hönnunarnema sem heitir Erik Bertell. Hann fann upp á nýrri og nútímalegri leið til að endurgera tuskumottuna með endurnýttum vefnaði.
Á meðan þróunarferlinu stóð kom einn af framkvæmdarstjórum í birgðaverksmiðjum okkar með þá hugmynd að konur í Karupannya, í norður Bangladess, myndu vefa motturnar. Hann vildi bæta líf fólksins í þorpinu og veita konum þar störf og stöðugar tekjur. Þar sem þetta svæði í Bangladess er þekkt fyrir gott vefnaðarhandverk varð þetta fullkomið samstarf.
Einfaldast hefði verið að framleiða mottu úr nýju efni í stað þess að senda afgangsefni til vefaranna. Það hefði þó ekki verið IKEA leiðin. „Við viljum að hlutir séu einfaldir en við viljum líka framleiða vörur á sjálfbærari máta. Birgðasalinn og mottuteymið á skrifstofu IKEA í Nýju Delí unnu saman til að það yrði að veruleika.“ Segir Rasmus Jönsson sem vinnur með TÅNUM.
Það er hluti af framtaki okkar sem við köllum „Made by People: Handmade rugl“, að fá fólk í Karupannya til að vefa motturnar. Þetta er langtímaverkefni hjá IKEA sem kemur á fót vefmiðstöðum nálægt þorpunum. Með því að sameina vefara er hægt að fylgjast með og bæta framleiðslu og vinnuumhverfi. Þannig sköpum við betri aðstæður fyrir vefarana og þau öðlast vinnuvistvænna umhverfi sem krefst þess ekki að fólk noti mikinn vöðvastyrk. „Það besta er að við bjóðum upp á hagnýtar og fallegar mottur fyrir þúsundir heimila með afgangsefnum, og á sama tíma sköpum við störf fyrir konur í Bangladess. Það er bæði gott fyrir fólkið og umhverfið,“ segir Rasmus.
Bómull er ein af vinsælustu náttúrulegu trefjunum í heiminum í dag. Vefnaðarvara úr bómull er mjúk, endingargóð og það er hægt að þvo hana á háum hita. Hún andar einnig vel og dregur í sig raka – sem gerir það að verkum að gott er að hafa hana næst líkamanum. Við hjá IKEA notum meira og meira af endurunninni bómull og kappkostum að tryggja að öll ný bómull sem við notum sé ræktuð og unnin með minna magni af skordýraeitri, áburði og vatni.
Hver TÅNUM motta er úr afgangsbútum sem falla til við framleiðslu á rúmfötunum okkar. Bútarnir eru endurnýttir af færu handverksfólki sem gera úr þeim stórkostlegar mottur . Með því að velja TÅNUM mottu ertu að færa heimilinu einstakan mun án þess að ganga á auðlindir jarðar.
Vöru bætt við óskalistinn þinn
Vara fjarlægð frá óskalistinn þinn
Unnið í handverkssetrum á Bangladess, þar sem vinnuaðstæður eru góðar og launin sanngjörn.
Bómull er mjúkt náttúrulegt efni sem er auðvelt í umhirðu því það má þvo í þvottavél.
Hentar vel á allar tegundir gólfa, líka upphituð gólf.
Nytsamleg motta sem passar nánast hvar sem er þar sem lögunin, stærðin og litablandan kemur vel út hvar sem er.
Vörunúmer 302.126.75
1 pakkning(ar) alls
Má þvo í vél við hámark 30°C, venjulegur þvottur. Má ekki setja í klór. Má ekki setja í þurrkara. Má ekki strauja. Má ekki þurrhreinsa. Hengdu upp til þerris. Getur hlaupið um 10%
Notaðu stamt STOPP undirlag fyrir aukið öryggið. Settu það undir alla mottuna.
Lengd: | 61 cm |
Breidd: | 24 cm |
Hæð: | 2 cm |
Heildarþyngd: | 0,74 kg |
Nettóþyngd: | 0,73 kg |
Rúmmál hvers pakka: | 2,6 l |
Vörunúmer 302.126.75
Vörunúmer | 302.126.75 |
Vörunúmer 302.126.75
Lengd: | 90 cm |
Breidd: | 60 cm |
Þykkt: | 4 mm |
Flötur: | 0,54 m² |
Yfirborðsþéttleiki: | 1350 g/m² |
Vörunúmer: | 302.126.75 |
Pakkningar: | 1 |
Lengd: | 61 cm |
Breidd: | 24 cm |
Hæð: | 2 cm |
Heildarþyngd: | 0,74 kg |
Nettóþyngd: | 0,73 kg |
Rúmmál hvers pakka: | 2,6 l |
Finndu vöruna í versluninni
1 pakkning(ar) alls